Stjórn Samtaka um sárameðferð á Íslandi (SUMS) auglýsir þrjá styrki, hvern að verðgildi allt að 200 þúsund krónum.
Styrkirnir eru veittir verkefnum eða rannsóknum sem stuðla að bættri sárameðferð á Íslandi og samræmast markmiðum SUMS.
Umsækjendur þurfa að vera í samtökunum og skuldbinda sig til að kynna verkefnin / rannsóknirnar á ráðstefnu eða aðalfundi SUMS.
Styrkir eru ekki veittir til ráðstefnuferða nema ef viðkomandi fer til að kynna verkefni í formi erindis eða veggspjalds.
Umsóknir skal senda sem fylgiskjal (pdf form) á sums2004@gmail.com.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2019.
Styrkþegar verða kynntir á haustráðstefnu SUMS 11. október 2019.
Nánari upplýsingar í viðhengi og með því að senda póst á sums2004@gmail.com.
Auglýsing SUMS um verkefna- og rannsóknarstyrki